Draumar og
túlkun þeirra
Námskeið í Glerárkirkju Akureyri
Langar þig að vita hvað draumarnir þínir þýða? Langar þig að muna betur draumana þína? Langar þig að læra betur á tilfinningar þínar? Draumaprestur verður með námskeið á Akureyri 30. og 31. maí 2020. Verð 6.000 kr. fyrir allan pakkann, hægt er að koma bara á fyrirlesturinn og greiða þá 3.000 kr.

Um námskeiðið
Námskeiðið fjallar um drauma, eðli þeirra og tilgang, og hvernig hægt er að vinna með þá í daglegu lífi sér til andlegrar uppbyggingar. Byggt er á kenningum C.G. Jungs um djúpsálarfræði og drauma, auk þess sem fjallað er um drauma í Biblíunni og krisitnni trú, sem og í íslenskri menningu. Fyrri hluti námskeiðsins er í fyrirlestraformi, og er þátttakendafjöldi ótakmarkaður. Síðari hluti námskeiðsins er lokaður og 20 pláss í boði. Þar að auki verður mikil áhersla á draumavinnu, þ.e. hópavinnu þar sem fólk leggur fram drauma og vinnur með þá í samvinnu við hópinn.
Umsjónarkona námskeiðsins er sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Grafarvogskirkju. Sr. Arna hefur áralanga reynslu í að nota draumavinnu í sálgæslu og hefur sótt sér fræðslu og þjálfun í þeim efnum hjá reyndum aðilum. Þar að auki hefur hún aflað sér aukinnar menntunar og þjálfunar í sálgæslu og viðtalstækni.
Markmið námskeiðsins:
Að fólk fái yfirsýn yfir ýmsar hugmyndir og kenningar um svefn og drauma
Að fólk fái þjálfun í að ráða og vinna með sína eigin drauma eftir kenningum djúpsálarfræðinnar.
Að kynna fyrir fólki hin ýmsu draumatákn og ólíka merkingu þeirra.
Að þjálfa fólk í að muna drauma sína og skrá þá með ólíkum aðferðum.
Skráning hér að neðan:
Skráning á námskeið
Hægt er að velja um að mæta aðeins á fyrirlesturinn er að taka þátt allri dagskránni.